![Fögnuður Rúmenar fögnuðu vel í Stuttgart eftir að hafa tryggt sér sigur í E-riðlinum á Evrópumótinu.](https://cdni.mbl.is/m2/lsahva_HtGNvrlIXuxghmUgb3kU=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/06/27/h27-58a_1356171.jpg)
EM í fótbolta
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Einhver ótrúlegasta niðurstaða í riðlakeppni á stórmóti í fótbolta leit dagsins ljós í gær þegar flautað var til leiksloka í tveimur síðustu leikjunum í E-riðli Evrópumóts karla í Þýskalandi.
Rúmenía og Slóvakía gerðu jafntefli, 1:1, í Frankfurt og á sama tíma gerðu Belgía og Úkraína markalaust jafntefli í Stuttgart.
Þar með urðu liðin fjögur öll jöfn að stigum í riðlinum með fjögur stig hvert.
Rúmenar standa uppi sem sigurvegarar með 4 stig og markatöluna 4:3, og mæta fyrir vikið liði sem hafnar í þriðja sæti í sínum riðli.
Belgar eru í öðru sæti með 4 stig og markatöluna 2:1 og þeir mæta engum öðrum en nágrönnum sínum Frökkum í sextán liða úrslitum keppninnar.
Slóvakar enda í þriðja sæti með 4 stig og markatöluna 3:3 og þeir mæta einu af sigurliðunum
...