![Ríkiseignir Sigurður Þórðarson, fv. settur ríkisendurskoðandi, hefur áður gert fjölmargar athugasemdir við innra stjórnskipulag Lindarhvols.](https://cdni.mbl.is/m2/H3LqGv7VH8TdMggsd1iIiPRYfz8=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/06/28/h28-06a_1356209.jpg)
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Eignarhaldsfélagið BLM fjárfestingar, sem keypti hlut ríkisins og Arion banka í Klakka (áður Exista), fjórfaldaði verðmæti félagsins á örfáum árum. Háar greiðslur vegna ráðgjafaþjónustu félagsins kunna að kalla á frekari rannsókn.
Þetta kemur fram í bréfi sem Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi og settur ríkisendurskoðandi vegna Lindarhvols ehf., hefur sent héraðssaksóknara. Hann lét afrit af bréfinu fylgja til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og ríkisskattstjóra. Morgunblaðið hefur bréfið undir höndum.
Sigurður hefur sem kunnugt er haft uppi mikla gagnrýni um starfsemi Lindarhvols, sem hafði umsjón með sölunni á Klakka til BLM fjárfestinga. Eins og fjallað var um í Morgunblaðinu í mars sl. telur Sigurður að ríkið hafi orðið af um 1,7 milljörðum króna með sölunni, sem skýrist að mestu af þeim tekjum
...