Fjármálaráðherra boðar aðhaldssöm fjárlög á kosningaári

Nýjar verðbólgutölur voru birtar í vikunni og voru í grófum dráttum í samræmi við væntingar, eins og Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra benti á í samtali við mbl.is. Verðbólgan lækkaði lítillega, mældist 5,8%, og hefur ekki verið lægri í tvö og hálft ár.

Fjármálaráðherra sagði að þrátt fyrir að verðbólgan væri á niðurleið væri mikilvægt að halda áfram með aðhaldið. Í undirbúningi væru aðhaldssöm fjárlög sem lögð yrðu fram í haust. „Þau verða með þessa skýru mynd á að við ætlum að ná þessum árangri að ná niður verðbólgu og vöxtum þannig að þau eru aðhaldssöm,“ sagði fjármálaráðherra.

Vonandi gengur þetta eftir enda er mikið í húfi. Með aðhaldssömum fjárlögum aukast verulega líkur á að verðbólga haldi áfram í rétta átt og að vextir lækki hratt og umtalsvert. Aðhald hefur þó verið af heldur skornum skammti á síðustu misserum hjá ríkinu þannig að ekki er óvarlegt taka slíkum yfirlýsingum með fyrirvara og bíða eftir

...