Þessi rússneski hermaður er einn þeirra sem standa vaktina í Sigurgarðinum svonefnda í Moskvu og fræðir gesti um sigruð vestræn hertól sem þar standa, en þeim var grandað á vígvöllum Úkraínu. Til hliðar við hermanninn stendur m.a. bandarískur orrustuskriðdreki af gerðinni Abrams M1A1.