Halla Steingrímsdóttir fæddist 3. desember 1936. Hún lést 29. maí 2024.

Útför Höllu fór fram 27. júní 2024.

Elsku amma okkar. Það var erfitt að kveðja þig en við eigum margar hlýjar og dýrmætar minningar sem munu lifa með okkur út lífið. Það sem stendur einna helst upp úr hjá okkur eru öll áramótapartíin með stórfjölskyldunni. Það sást alltaf hvað ömmu þótti vænt um að hitta öll barnabörnin og þennan dag höfum við átt ótalmargar æðislegar stundir saman þar sem við skáluðum og tókum á móti nýju ári saman.
Við munum eftir ömmu okkar sem glæsilegri konu og við systur, Halla og Sigga, munum eftir því sem litlar stelpur að við elskuðum að skoða allt glingrið sem hún bar. Við litum upp til ömmu okkar og hugsuðum alltaf með okkur að við ætluðum líka að verða svona miklar skvísur þegar við yrðum stórar.
Seinustu árin vorum við svo lánsöm

...