![Fjártækni Bjarni Gaukur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Blikks og Jónína Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Blikks.](https://cdni.mbl.is/m2/d3ax6BmnintpMKL5xS2pa7uA8HA=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/02/j2-12b_1356425.jpg)
Magdalena Anna Torfadóttir
magdalena@mbl.is
Hugbúnaðarfyrirtækið Blikk býður upp á nýja greiðslulausn þar sem greiðsla er framkvæmd með millifærslu í gegnum greiðslugátt í vefverslun eða smáforriti í verslun. Lausnin nefnist reikning í reikning greiðslulausn og virkar þannig að millifærsla er framkvæmd á sama tíma og sala er kláruð.
Jónína Gunnarsdóttir rekstrarstjóri Blikks segir að með lausninni fari peningurinn ekki í sama ferðalag og hann fer í gegnum ef kort eru notuð.
„Við komum ekki við peninginn og erum í raun eins og umferðarlögregla. Millifærslan er framkvæmd á sömu sekúndunni,” segir Jónína.
Munurinn á lausn Blikks og hefðbundnum greiðslukortalausnum er að peningurinn fer ekki í gegnum marga milliliði og jafnvel út úr landi og aftur inn í landið með tilheyrandi kostnaði.
Seðlabankinn hefur tekið saman kostnað
...