Sundhöll Seyðisfjarðar var lokað um miðjan júní vegna manneklu en erfiðlega hefur gengið að ráða starfsfólk, að sögn Dagnýjar Erlu Ómarsdóttur umsjónarmanns laugarinnar.

Þá er óvíst hvenær hægt verður að opna sundhöllina aftur þó að búið sé að ráða starfsmenn en þeir þurfa að standast námskeið fyrir starfsmenn sundlauga.

Dagný vonar að hægt verði að opna sundhöllina áður en listahátíðin Lunga hefst í bænum 15. júlí. sigridurh@mbl.is