Svartur á leik
Svartur á leik

Staðan kom upp í áskorendaflokki Skákþings Íslands sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Gunnar Erik Guðmundsson (2.046) hafði svart gegn Brynjari Bjarkasyni (1.778) . 51. ... b4! 52. axb4 a4 svartur hefði einnig haft unnið tafl eftir 52. ... axb4. 53. Kd1 a3 54. Kc1 a2 55. Bxd4+ Kxd4 56. Kb2 Bxf3 og hvítur gafst upp. Sunnudaginn 7. júlí næstkomandi fer Viðeyjarmótið fram. Margir íslenskir skákmenn sitja að tafli á erlendum vettvangi þessa dagana, meðal annars taka titilhafar á borð við Hannes Hlífar Stefánsson, Helga Áss Grétarsson, Hilmi Frey Heimisson og Vignir Vatnar Stefánsson þátt í alþjóðlegu móti í Ceske Budejovice í Tékklandi. 2. umferð HM öldungasveita í opnum flokki (50+) fer fram í dag í Kraká í Póllandi. Finna má nánari upplýsingar um þessa skákviðburði á skak.is.

...