Yfirbragð íslensks leikjaiðnaðar mun breytast umtalsvert á næstu 12-18 mánuðum að mati Halldórs Snæs Kristjánssonar, formanns Samtaka leikjaframleiðenda, IGI, og framkvæmdastjóra tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games.
Halldór Snær Kristjánsson með samstarfsfélögum í Myrkur Games.
Halldór Snær Kristjánsson með samstarfsfélögum í Myrkur Games. — Morgublaðið/Hari

„Við erum í einstakri stöðu í leikjaiðnaðinum á Íslandi. Það er svipmyndarbreyting fram undan. Saga iðnaðarins hefur að miklu leyti snúist í kringum CCP síðustu tvo áratugina. Það hefur verið okkar stóra og flotta fyrirtæki í fjölda ára en vegna mikillar innspýtingar af fjármagni inn í greinina á síðustu árum munum við fara úr því innan tíðar að vera með eitt kjarnafyrirtæki á markaðnum yfir í að vera með heilan iðnað,” segir Halldór í samtali við ViðskiptaMoggann.

Þróun tekur mörg ár

Hann segir það vera eðli tölvuleikjafyrirtækja að þróun vörunnar taki mörg ár. Því líði oft langur tími án þess að neitt sérstakt sé að frétta og umheimurinn viti þar af leiðandi lítið hvað sé að gerast á bak við tjöldin.

„Ef fólk væri beðið að nefna kannski þrjú íslensk tölvuleikjafyrirtæki er ég viss um að mörgum þeirra vefðist tunga um tönn, þó að fyrirtækin séu tuttugu talsins.

...