Einar P. Gunnarsson fæddist 22. september 1949. Hann lést 22. júní 2024.

Útför Einars fór fram 2. júlí 2024.

Elsku Einar.

Það er skrítið og ósanngjarnt að þurfa kveðja en gott að vita til þess að þér líði nú betur. Ég veit að afi og amma tóku vel á móti þér og þið rifjið nú upp góða tíma. Ég hef alltaf horft aðdáunaraugum á hversu góður bróðir þú varst mömmu og hve vel þið hugsuðum um afa, þvílíkar fyrirmyndir. Góða ferð elsku frændi.

Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.

En styrrinn aldrei stóð um þig,
- hver stormur varð að lægja sig,
er sólskin þinnar sálar skein

...