Helgi Hallgrímur Jónsson fæddist 17. september 1957. Hann lést 19. maí 2024.

Helgi var jarðsunginn 4. júlí 2024.

Helgi tengdasonur okkar kom inn í fjölskylduna um jólin 1979, eftir að hann og dóttir okkar Guðrún Vigdís höfðu kynnst á Borgarfirði eystri þá um sumarið.
Þau Guðrún og Helgi bjuggu á Borgarfirði árin 1980 til 1984, en fluttu svo suður í Kópavog þá um haustið. Helgi hóf á þeim tíma nám í vélvirkjun við Iðnskólann í Reykjavík og var á námssamningi hjá Kassagerð Reykjavíkur, undir handleiðslu tengdaföður síns. Helgi útskrifaðist sem vélvirki vorið 1988 og starfaði eftir það í vélsmiðju Kassagerðarinnar og síðar hjá Prentsmiðjunni Odda, Prentmeti og Vélaborg.
Helgi var alla tíð traustur drengur og bóngóður þegar aðstoð vantaði við eitt og annað, hvort sem um var að ræða bílaviðgerðir, flísalagnir, málningarvinnu eða nánast

...