![Sund. Ungir sem aldnir ættu að drífa sig í sund sem allra fyrst.](https://cdni.mbl.is/m2/xu7NmOQiM_OP7b1RKlezc7XbAQU=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/05/j5-a16b_1356656.jpg)
Íslendingar eru sem betur fer flestir bjargálna og marga munar ekki um að borga þessi fjögur þúsund fyrir árskort, og eins er með komugjöld þeirra eldri á heilsugæsluna, þau voru ekki há. Síðan þau voru lögð niður hefur allt gengið öndvert í heilbrigðismálum með læknaskorti og lengri bið eftir þjónustu.
Landsmenn hafa allir lífeyri, og hefðu vel til hnífs og skeiðar ef ekki væri fyrir himinhátt matarverð og galinn húsnæðiskostnað.
Í það fara aurar almennings en ekki í saklausa afþreyingu eins og sund eða að koma við á heilsugæslu öðru hvoru.
Í því samhengi virðist sundkortið harla léttvægt en það getur viðhaldið sjálfsvirðingunni að taka upp debetkortið og greiða sinn hlut.
Það er er ekki síður lýðheilsa í því fólgin en sundinu sjálfu og félagsskapnum.