![Skeiðarársandur. Löng röð bíla myndaðist vegna umferðarslyssins.](/myndir/gagnasafn/2024/07/05/p02-002.jpg)
Skeiðarársandur. Löng röð bíla myndaðist vegna umferðarslyssins.
— Ljósmynd/Gísli Reynisson
Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega í gær er hann féll af hjólinu og hafnaði utan vegar skammt frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi.
Slysið varð um klukkan fjögur og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út til að sækja ökumanninn.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi var einnig kölluð á slysstað til að rannsaka vettvang. Var annarri akreininni lokað og stýrði lögreglan umferð fram hjá á meðan.
Lögreglan kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.