Zóphonías fæddist á Árskógsströnd 28. ágúst 1943. Hann lést á Hrafnistu, Laugarási 5. júní 2024.

Foreldrar hans voru hjónin Baldvin Jóhannesson frá Kleif í Þorvaldsdal, f. 1904, d. 1975 og Jóhanna Freydís Þorvaldsdóttir frá Stóru-Hámundarstöðum í Árskógsstrandarhreppi, f. 1914, d. 1985. Þau bjuggu í Sælandi á Árskógsströnd.

Zóphonías var sjötti í röðinni af átta systkinum. Systkini hans eru Anton Þór, f. 1936, d. 2013. Jóhannes, f. 1937, d. 2014. Brynjar, f. 1939, d. 2013. Þorvaldur Þorvaldsson Baldvinsson, f. 1940, d. 2018. Ragnheiður Ingibjörg, f. 1948. Pálína Katrín, f. 1951.

Zóphonías giftist 30. júní 1965 Erlu Sigurveigu Þorsteinsdóttur, f. 1943, frá Brakanda í Hörgárdal, d. 1991. Börn þeirra eru: 1) Svanur Elfar, f. 1965, giftur Önnu Eydísi Friðjónsdóttur, f. 1970. Börn þeirra eru:

...