Ágúst Sigurðsson fæddist 22. ágúst 1936. Hann lést 21. júní 2024.

Útför Ágústar fór fram 29. júní 2024.

Það var skammt á milli hjónanna frá Birtingaholti, enda oft nefnd í sömu andrá, Gústi og Sigga eða Sigga og Gústi. Nú þegar sveitarhöfðinginn, öflugi bóndinn, Ágúst frá Birtingaholti, kveður þennan heim, saddur lífdaga eftir erfið síðustu ár, er margs að minnast eftir langt og giftusamt líf.

Gústi og faðir minn heitinn voru jafnaldrar, þannig að eðli máls voru samskipti mín meiri við börnin þeirra. Engu að síður kynntist ég mörgum hliðum á Gústa.

Ég var svo lánsamur að vera, ungur maðurinn, gjaldkeri Hrepphólakirkjusóknar i nokkur ár með þeim Ágústi og Stefáni frá Hrepphólum. Þar var Gústi formaðurinn, vakinn og sofinn yfir verkefninu og bar ætíð

...