Frjálsíþróttakonan Erna Sóley Gunnarsdóttir er fimmti íslenski keppandinn sem tryggir sér sæti á Ólympíuleikunum í París, en þeir hefjast í lok mánaðarins. Ernu Sóleyju, sem keppir í kúluvarpi, bárust þær fregnir í gærmorgun að hún væri á leið á…
![ÓL Erna Sóley Gunnarsdóttir við keppni á Meistaramóti Íslands á Akureyri um síðustu helgi þar sem hún sló eigið Íslandsmet í kúluvarpi.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/c4e4aabe-0fd7-4a22-9742-2da74caf3c4c.jpg)
ÓL Erna Sóley Gunnarsdóttir við keppni á Meistaramóti Íslands á Akureyri um síðustu helgi þar sem hún sló eigið Íslandsmet í kúluvarpi.
— Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Ólympíuleikar
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Frjálsíþróttakonan Erna Sóley Gunnarsdóttir er fimmti íslenski keppandinn sem tryggir sér sæti á Ólympíuleikunum í París, en þeir hefjast í lok mánaðarins. Ernu Sóleyju, sem keppir í kúluvarpi, bárust þær fregnir í gærmorgun að hún væri á leið á sína fyrstu leika og verður um leið fyrsta íslenska konan sem keppir í kúluvarpi á Ólympíuleikum.
„Það er bara svakaleg gleði. Ég er ótrúlega ánægð með að fá þessar fréttir. Ég var að vinna í miðasölunni á Landsmóti hestamanna þegar ég fékk símhringinguna núna áðan [í gær]. Þetta er ótrúlega gaman,” sagði hin 24 ára gamla Erna Sóley og hló er hún ræddi við Morgunblaðið í hádeginu í gær.
Fyrr í vikunni var útlit fyrir að
...