— AFP/Franck Fife

Frakkar sigruðu Portúgala í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í Þýskalandi í gærkvöld. Líklegt er að það hafi verið lokaleikur Cristianos Ronaldos á stórmóti. Frakkar mæta Spánverjum í undanúrslitum á þriðjudagskvöld en spænska liðið vann þýsku gestgjafana, 2:1, í spennuþrungnum og framlengdum leik í gær. » 40