![Svíþjóð Sigdís Eva Bárðardóttir leikur ekki meira með Víkingi.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/df90f6bd-f4cb-454c-b492-8e40a328bc87.jpg)
Svíþjóð Sigdís Eva Bárðardóttir leikur ekki meira með Víkingi.
— Ljósmynd/Óðinn Þórarinsson
Sigdís Eva Bárðardóttir, leikmaður Víkings og U19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu, er á leið til sænska úrvalsdeildarfélagsins Norrköping. Víkingar tilkynntu í gær að þeir hefðu samþykkt tilboð sænska félagsins. Sigdís er aðeins 17 ára gömul en hefur verið í stóru hlutverki í sóknarleik nýliða Víkings í bestu deild kvenna í ár og í fyrra var hún markahæsti leikmaður bikarkeppninnar þegar Víkingsliðið varð óvænt bikarmeistari.