Ásthildur Davíðsdóttir fæddist 12. nóvember 1951. Hún lést 12. júní 2024.

Ásthildur var jarðsungin 26. júní 2024.

Elsku hjartans systir mín og vinkona, þá er baráttan við sjúkdóminn illvíga yfirstaðin og þú komin á betri stað. Mín elsku raungóða og hæfileikaríka systir sem allt lék í höndunum á. Heimili mitt er skreytt með einstökum málverkum og listmunum sem þú hefur fært mér að gjöf í gegnum tíðina. Ég hvatti þig til að halda sýningu en það kom ekki til greina heldur kaust þú að gefa vinum þínum og börnum, þannig varstu gjafmild fram úr hófi.

Ég kveð þig með söknuði elsku litla systir. Minn hugur er hjá stelpunum þínum, Evu og Erlu, í þeirra sorg og söknuði og barnabörnunum þremur, Söru, Eyþóri og Lilju.

Allt eins og blómstrið

...