![Keir Starmer](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/f729c588-85ec-4ef4-821d-b6de58bbd493.jpg)
Keir Starmer
Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur verið skipaður forsætisráðherra Bretlands eftir afgerandi sigur flokksins í þingkosningum og afhroð Íhaldsflokksins. Starmer færði flokkinn nær miðju eftir stjórnartíð Jeremys Corbyns, forvera síns, sem hann bolaði úr flokknum á sínum tíma. Starmer er í senn sagður vera varkár, feiminn og vægðarlaus stjórnmálamaður. Hann hefur heitið breytingum sem fyrst og uppbyggingu.
» 20-21