Stöðug aukning var í notkun þunglyndislyfja meðal Íslendinga á árunum 2010 til 2021, en afgreitt magn þunglyndislyfja hefur haldist því sem næst óbreytt síðan 2021. Heildarfjöldi einstaklinga, óháð kyni og aldri, sem fær ávísað þunglyndislyfjum stendur í stað
![Þunglyndislyf Fluoxetin Viatris hefur áhrif á miðtaugakerfið og tilheyrir flokki lyfja sem kallast sértækir endurupptökuhemlar.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/7e7f6b3a-dbff-4103-b204-5e91af129664.jpg)
Þunglyndislyf Fluoxetin Viatris hefur áhrif á miðtaugakerfið og tilheyrir flokki lyfja sem kallast sértækir endurupptökuhemlar.
Baksvið
Valgerður L. Guðmundsd.
vally@mbl.is
Stöðug aukning var í notkun þunglyndislyfja meðal Íslendinga á árunum 2010 til 2021, en afgreitt magn þunglyndislyfja hefur haldist því sem næst óbreytt síðan 2021. Heildarfjöldi einstaklinga, óháð kyni og aldri, sem fær ávísað þunglyndislyfjum stendur í stað. Árið 2021 voru afgreiddir 166 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag og árið 2023 voru 168 skammtar afgreiddir á hverja 1.000
...