![Fer Frederik Schram gæti farið frá Val strax eftir 17. júlí.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/1d079cba-168f-4074-b0e1-6b0d0bac51a4.jpg)
Frederik Schram, sem hefur varið mark Valsmanna undanfarin tvö ár, eða frá miðju sumri 2022, er á förum frá félaginu og í hans stað kemur Ögmundur Kristinsson sem hefur leikið í Grikklandi undanfarin sex ár.
Frederik er samningsbundinn Val út þetta tímabil en Valsmenn skýrðu frá því í gær að samkomulag hefði ekki náðst um nýjan samning. Hann getur því farið frá félaginu áður en þessu tímabili lýkur. Frederik kom til Vals frá Lyngby í Danmörku. Hann hefur varið mark Vals í 49 leikjum í efstu deild og leikið 7 landsleiki fyrir Ísland.
Ögmundur, sem er 35 ára gamall og hefur leikið 19 A-landsleiki, fór frá Fram til Randers í Danmörku sumarið 2014 og lék síðan með Hammarby í Svíþjóð og Excelsior í Hollandi. Hann fór til Larissa í Grikklandi og var þar í tvö ár, síðan með stórliði Olympiacos í þrjú ár og í vetur með Kifisia, sem var nýliði í grísku úrvalsdeildinni.