Alda Jónsdóttir fæddist 7. júlí 1943. Hún lést 11. mars 2024.

Útför Öldu fór fram 22. mars 2024.

Við getum næstum heyrt Öldu frænku fussa yfir því að minningargrein frá okkur birtist í kringum afmælið hennar, mörgum mánuðum eftir útför. En afmælisdagurinn er nokkuð sem þær áttu saman systur, mamma/amma Hanna og Alda, og þetta er sá fyrsti sem þær fagna sitthvorumegin við móðuna miklu.

Þegar einhver hefur alltaf verið hluti af lífi fjölskyldunnar þá er erfitt að ímynda sér það öðruvísi. Alda bjó reyndar langt frá okkur, en við hittumst oft og hún átti stóran sess í tilverunni. Hún sendi krökkunum skemmtilegar gjafir á jólum, eitthvað sem gladdi þau og nýttist vel: Fullur pungur af peningum sem glitra eða heklaður þvottapoki sem passar fullkomlega á litlar hendur.

Alda opnaði nýjar dyr fyrir okkur sem kynntumst henni sem

...