Alls seldust 10,7 milljónir lítra af áfengi í verslunum ÁTVR fyrstu sex mánuði ársins. Það er nokkuð minna en á sama tíma í fyrra. Þá hafði selst 11,1 milljón lítra. Nemur samdrátturinn 3,6% milli ára
Vínbúðin Nokkuð minni sala á áfengi í ár en á sama tíma í fyrra.
Vínbúðin Nokkuð minni sala á áfengi í ár en á sama tíma í fyrra. — Morgunblaðið/Unnur Karen

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Alls seldust 10,7 milljónir lítra af áfengi í verslunum ÁTVR fyrstu sex mánuði ársins. Það er nokkuð minna en á sama tíma í fyrra. Þá hafði selst 11,1 milljón lítra. Nemur samdrátturinn 3,6% milli ára. Árið 2022 seldust 11,3 milljónir lítra fyrstu sex mánuði ársins og nemur samdrátturinn yfir tveggja ára tímabil því 5,3%.

Sem kunnugt er hefur mikil umræða verið um tilkomu netverslana með áfengi og hafa matvöruverslanir boðað að þær ætli

...