Orkusetur Orkustofnunar hefur auglýst eftir umsóknum um svonefnda sólarsellustyrki. Um tilraunaverkefni er að ræða og hefur ekki verið gert hér á landi áður, segir Sigurður Ingi Friðgeirsson framkvæmdastjóri Orkuseturs
![Sólarsellur Nýir styrkir geta numið allt að 50% af efniskostnaði.](/myndir/gagnasafn/2024/07/08/69e09214-b213-4902-8aa7-8f28be272938.jpg)
Sólarsellur Nýir styrkir geta numið allt að 50% af efniskostnaði.
— AFP
Guðrún S. Arnalds
gsa@mbl.is
Orkusetur Orkustofnunar hefur auglýst eftir umsóknum um svonefnda sólarsellustyrki. Um tilraunaverkefni er að ræða og hefur ekki verið gert hér á landi áður, segir Sigurður Ingi Friðgeirsson framkvæmdastjóri Orkuseturs.
Styrkjunum er ætlað að aðstoða við uppsetningu á sólarsellum, til að framleiða rafmagn frá sólarbirtunni. Jafnt einstaklingar sem lögaðilar geta sótt um styrki. Við úthlutun þeirra eru í forgangi notendur utan samveitna, á dreifbýlistaxta og
...