Þórunn Bergþórsdóttir fæddist 11. júlí 1933 í Ólafsfirði. Hún lést á Droplaugarstöðum 21. júní 2024.

Foreldrar hennar voru Bergþór Kristinn Guðleifur Guðmundsson, f. 16. febrúar 1910, d. 10. september 1980, og Sigrún Sigtryggsdóttir, f. 2. ágúst 1913, d. 8. janúar 2009.

Systkini Þórunnar eru Gunnar Tryggvi, f. 1934, d. 1972, Stefán Friðrik, f. 1936, Anna Sigríður, f. 1937, d. 2020, Hildur, f. 1941 og Atli Rúnar, f. 1947, d. 1953.

Þórunn giftist Eðvarði Guðmundssyni frá Hundastapa á Mýrum, f. 1930, d. 1988, þann 10. maí 1958. Börn þeirra eru tvö: 1) Sigurbjörg, f. 1958, gift Rémi Spilliaert, f. 1958, þeirra börn eru Edda, f. 1988, Sólveig, f. 1990, og Sylvía, f. 1994. Edda er í sambúð með Karli Marcusi Lothsson, f. 1986, og þau eiga Ottó, f. 2019, Björn, f. 2020, og Ellis, f. 2023. Sylvía er

...