Næstu tónleikar í röðinni Sumartónar í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ verða haldnir annað kvöld, þriðjudagskvöldið 9. júlí, kl. 19.30. Þar mun Tríó Norðsól „fara með okkur í músíkalskt ferðalag um Norðurlöndin“, eins og það er orðað í tilkynningu. Tríó Norðsól skipa Svafa Þórhallsdóttir sópransöngkona, Hanna Englund sellóleikari og Anne Mathiesen píanóleikari. Þær flytja tónlist eftir Grieg, Carl Nielsen, Sibelius, Jórunni Viðar og Hugo Alfven.