![Sigurviss Jean-Luc Mélenchon var snöggur í ræðustólinn við lok kosninga.](/myndir/gagnasafn/2024/07/08/0513fb68-2e27-44da-94a7-1ddad9827124.jpg)
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Vinstriflokkabandalagið Nýja Alþýðufylkingin í Frakklandi er stærsti flokkurinn á franska þinginu eftir síðari umferð frönsku þingkosninganna í gær – niðurstaða sem ekki hafði verið talin sú líklegasta eftir fyrri umferð kosninganna. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær hafði Alþýðufylkingin hlotið 176 þingsæti, Endurreisnarflokkur Emmanuels Macrons forseta 154 og Þjóðfylking Marine Le Pen 140.
Kosið um 501 þingsæti
Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem birtar voru á slaginu klukkan 20 að frönskum tíma, þegar kjörstöðum var lokað, var Nýju Alþýðufylkingunni spáð 172 til 192 þingsætum en franska þingið telur 577 sæti og stóð síðari umferðin í gær um 501 þeirra. Niðurstaða fékkst í 76 kjördæmum í fyrri umferðinni á sunnudaginn fyrir viku.
...