Göngumaðurinn sem viðbragðsaðilar leituðu að í Suðursveit á föstudag fannst látinn síðdegis þann dag. Ásamt lögreglu tóku björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar þátt í leitinni.
Ekki hafði sést til mannsins í um það bil sólarhring og rannsókn lögreglu leiddi í ljós að líklegast væri að hann hefði ætlað að ganga krefjandi leið frá Kálfafellsstað upp á Birnudalstind. Í Facebook-færslu Björgunarfélags Hornafjarðar kemur fram að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi strax verið kölluð út til að koma að leitinni ásamt björgunarfélaginu. Sleðahópur á vegum björgunarfélagsins lagði af stað frá Skálafellsjökli og skoðaði Miðsfellsegg og svæðið í nágrenni Birnudalstind. Að því loknu gekk hópurinn á móti gönguhóp sem lagði af stað frá Kálfafellsstað á sama tíma. Maðurinn fannst látinn fyrir botni Birnudals.