Sigurgeir Bjarni Árnason fæddist á Ísafirði 11. apríl 1953. Hann lést á Landspítalanum 20. júní 2024.

Móðir Sigurgeirs var Jóna Friðgerður Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, f. 14. maí 1932, d. 6. apríl 1997. Faðir hans var Árni Hlöðver Árnason, f. 19. desember 1927, d. 11. janúar 1980.

Stjúpfaðir Sigurgeirs Bjarna, eiginmaður Ingibjargar, var Þorgrímur Guðnason, hann er látinn.

Systir Sigurgeirs er Pálína Þórarinsdóttir, f. 6. september 1951, hún er búsett á Ísafirði og á tvo syni. Bróðir Sigurgeirs samfeðra var Reynir Ágúst Árnason, f. 25. ágúst 1963, d. 18. nóvember 2013.

Sigurgeir Bjarni giftist barnsmóður sinni Margréti Ingimundardóttur, f. 31. janúar 1955 í Reykjavík. Þau bjuggu saman í nokkur ár en síðan skildi leiðir

...