Miranda Cosgrove lék Carly Shay í iCarly.
Miranda Cosgrove lék Carly Shay í iCarly.

Flestir þekkja unglingastjörnuna Miranda Cosgrove, en hún fór með hlutverk í þáttunum „iCarly“. Þættirnir voru sýndir á árunum 2007 til 2012 og segja frá Carly, leikinni af Cosgrove, og vinum hennar, sem fást við ýmislegt skemmtilegt. Cosgrove birtist á dögunum í viðtali þar sem hún sagði að henni fyndist saga Carly ókláruð og hún vildi endilega klára sögu þeirra vina, ef til vill með bíómynd. Það má því vera að aðdáendur geti séð Cosgrove aftur á skjánum sem Carly bráðlega, þótt ekkert sé víst.