![](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/d6d36ff6-8980-46b3-9893-0a668b9db6b8.jpg)
Zak Nelson, annar farþeganna sem lenti í árekstri við Hellu í apríl, hrósar íslensku heilbrigðiskerfi í hástert á samfélagsmiðlinum TikTok. Zak var á ferð um landið með kærasta sínum, Eliot Griffiths, fyrr í vor. Eins og svo margir ferðamenn, leigðu þeir sér bílaleigubíl til að skoða Suðurlandið. Þeir voru á leiðinni á gististaðinn þegar áreksturinn varð. Bíllinn þeirra gjöreyðilagðist og voru þeir fluttir með hraði á slysadeild. Zak sagði íslenska heilbrigðiskerfið stórkostlegt, starfsfólkið dásamlegt og að allir hafi haft tíma fyrir þá. Lestu meira á K100.is.