„Ég er spennt fyrir þessu og vonandi fáum við góð úrslit,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðskona í fótbolta, við Morgunblaðið en Ísland mætir Þýskalandi á morgun í undankeppni EM á Laugardalsvellinum klukkan 16.15
![Unnu Ingibjörg Sigurðardóttir í sigurleiknum gegn Austurríki á Laugardalsvellinum í síðasta mánuði en Ísland stendur vel að vígi í riðlinum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/05062ca0-5e57-4fa8-93b4-0690f070e498.jpg)
Unnu Ingibjörg Sigurðardóttir í sigurleiknum gegn Austurríki á Laugardalsvellinum í síðasta mánuði en Ísland stendur vel að vígi í riðlinum.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EM 2025
Ásta Hind Ómarsdóttir
astahind@mbl.is
„Ég er spennt fyrir þessu og vonandi fáum við góð úrslit,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðskona í fótbolta, við Morgunblaðið en Ísland mætir Þýskalandi á morgun í undankeppni EM á Laugardalsvellinum klukkan 16.15.
Þýskaland er í fjórða sæti á heimslistanum og Ísland tapaði, 3:1, síðast þegar liðin mættust í fyrri leik liðanna í keppninni í haust, svo þetta verður erfiður leikur en Ingibjörg er spennt fyrir honum.
„Það þarf varla að gíra sig upp fyrir þennan leik, sérstaklega á heimavelli. Við þurfum að verjast vel og nýta þau færi sem við fáum. Þetta er mjög gott lið og við þurfum að gera það sem við erum góðar í.“
...