![Longdown Skipinu var beint til hafnar í Vestmannaeyjum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/9b34064e-fe2b-4ad4-9edf-3c4b7149cf30.jpg)
Longdown Skipinu var beint til hafnar í Vestmannaeyjum.
— Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Búið er að gefa út ákæru í máli er varðar árekstur flutningaskipsins Longdawn og strandveiðibátsins Höddu HF 52 .Verður málið þingfest fyrir dómi og ákæra birt í dag.
Þingfest verður fyrir Héraðsdómi Reykjaness kl. 13 en Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, segir að búið sé að gefa út ákæru í málinu.
Kveðst hann þó ekki geta upplýst um efnistök ákærunnar fyrr en hún hafi verið formlega birt fyrir ákærðu á morgun.
Í farbanni síðan í maí
Tveir skipverjar Longdawn hafa réttarstöðu sakbornings í málinu og hafa sætt farbanni frá því í maí vegna rannsóknarhagsmuna.
Báturinn Hadda sökk norðvestur af Garðskaga 16. maí og voru skipstjóri og stýrimaður skipsins Longdawn handteknir vegna gruns um að hafa yfirgefið mann í
...