Undanúrslitaleikur Englands og Hollands á Evrópumóti karla í knattspyrnu hófst klukkan 19 í gærkvöld, um það leyti sem Morgunblaðið fór í prentun. Allt um leikinn er að finna á mbl.is en sigurvegarinn mætir Spáni í úrslitaleik EM í Berlín á sunnudagskvöldið.

Julian Álvarez og Lionel Messi tryggðu Argentínu sigur á Kanada, 2:0, í undanúrslitum Ameríkubikarsins í knattspyrnu þegar liðin mættust í New Jersey í Bandaríkjunum. Argentína leikur því til úrslita á mótinu gegn annaðhvort Úrúgvæ eða Kólumbíu en viðureign þeirra fór fram í nótt. Úrslitaleikurinn fer fram á sunnudagskvöldið og hefst á miðnætti að íslenskum tíma.

Hollenski knattspyrnumaðurinn Donny van de Beek er á leið til Girona á Spáni frá Manchester United. Hann kom til United árið 2020 frá hollenska liðinu Ajax en

...