Páll Gunnlaugsson fæddist 28. febrúar 1936 í Skerjafirði í húsinu Garði í Reykjavík. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði, 26. júní 2024.

Foreldrar Páls voru Gunnlaugur Jónsson, f. 7. maí 1907, d. 25. október 1974, og Kristín Magnúsdóttir, f. 1. nóvember 1913, d. 25. september 1949. Systir hans er Ásdís Magnea Gunnlaugsdóttir, f. 18. mars 1939, d. 25. september 2020. Til Siglufjarðar kom fjölskyldan með viðveru á
Sólbakka í Önundarfirði og Raufarhöfn.

Páll kynntist Stellu Minný Einarsdóttur 1959 og voru þau gefin saman 15. maí 1966 af sr. Ragnari Fjalari Lárussyni á prestssetrinu á Siglufirði. Foreldrar Stellu voru Einar Ásgrímsson, f. 6. nóvember 1896, d. 5. október 1979 og Dóróthea Sigurlaug Jónsdóttir, f. 6. maí 1904, d. 24. mars 2001.

Börn þeirra eru: 1) Sammæðra,

...