Víkingur Bergþóra Sól Ásmundsdóttir kemur frá Örebro.
Víkingur Bergþóra Sól Ásmundsdóttir kemur frá Örebro. — Ljósmynd/Víkingur

Knattspyrnukonan Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er gengin til liðs við Víking í Reykjavík frá Örebro í Svíþjóð og hefur samið við félagið út tímabilið 2025. Bergþóra er 21 árs miðjumaður eða bakvörður, uppalin hjá Breiðabliki, og fór þaðan til Örebro í Svíþjóð síðasta haust. Hún lék 15 leiki með liðinu í úrvalsdeildinni en hafði ekki fengið tækifæri í síðustu sex leikjum liðsins. Bergþóra hefur leikið alla fjóra leiki U23 ára landsliðs Íslands.