![Hólmfríður og Magnús „Við viljum leggja okkar af mörkum til að takast á við samfélagsmeinið eitruð samskipti.“](/myndir/gagnasafn/2024/07/12/15eb9739-41e2-424f-8a22-c56d7ebd4b20.jpg)
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég trúi því að ef maður lendi í einhverju erfiðu þá sé alltaf einhver tilgangur með því. Þegar ég var 18 og 19 ára vann ég sem flokkstjóri í unglingavinnu en sú lífsreynsla reyndist nokkuð erfið, vegna eitraðra samskipta. Ég huggaði mig með því að einn daginn myndi ég nota þetta sem efnivið í verk, í hvað mynd sem væri,“ segir Hólmfríður Hafliðadóttir leikkona, en einleikur hennar, Flokkstjórinn, undir leikstjórn Magnúsar Thorlacius, fer af stað þriðja sumarið, nú í júlí. Einleikurinn sem er byggður á reynslu Hólmfríðar í flokkstjórastarfinu, er fluttur undir berum himni og fjallar um meiðandi samskipti unglinga, eineltismenningu og hve grimm mannskepnan getur verið þegar hún þráir ekkert heitar en að tilheyra hópnum.
„Þegar ég starfaði
...