![Páll Gunnar Pálsson](/myndir/gagnasafn/2024/07/12/8aed5506-2f15-499d-8008-0afc85b9d9d2.jpg)
Samkeppniseftirlitið (SKE) ber fyrir sig að annir hafi tafið afhendingu og skil þeirra gagna sem aflað var með ólögmætum hætti síðasta sumar frá sjávarútvegsfyrirtækjum í tengslum við rannsókn eftirlitsins á eignatengslum í greininni.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra SKE, við fyrirspurn Morgunblaðsins. Hann segir þó að fyrirhugað sé að skila gögnunum á næstu vikum.
Fjallað var um málið í ViðskiptaMogganum í vikunni, þar sem fram kom að gögnum hafi enn ekki verið skilað. Þá telja sjávarútvegsfyrirtæki að skortur sé á skýringum af hálfu eftirlitsins á því hvers vegna eftirlitið hafi enn ekki staðið við skil á gögnunum. Öflun gagnanna var sem kunnugt er metin ólögmæt af áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
SKE hafði
...