Jafnt Valur og Vllaznia skildu jöfn og mætast í Shköder á fimmtudag.
Jafnt Valur og Vllaznia skildu jöfn og mætast í Shköder á fimmtudag. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

Valsmenn hafa tilkynnt um framkomu stjórnarmanna og stuðningsmanna Vllaznia frá Albaníu í garð þeirra og dómara leiks liðanna á Hlíðarenda í fyrrakvöld til UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var m.a. um líflátshótanir að ræða. Valsmenn staðfestu í gær að málið væri í farvegi hjá öryggisdeild UEFA sem liti það mjög alvarlegum augum. Valur á að leika í Albaníu næsta fimmtudag.