Regína Ingólfsdóttir fæddist á Siglufirði 27. september 1935. Hún lést á Landspítalanum 19. júní 2024.

Egill Þ. Jónsson fæddist í Reykjavík 8. júní 1935. Hann lést á líknardeildinni 21. júní 2024.

Foreldrar Regínu voru Haflína Björnsdóttir, f. 24. október 1902, d. 2. október 1982, og Ingólfur Níelsson, f. 8. maí 1912, d. 2. apríl 1982. Eftirlifandi bræður hennar eru Níels og Ásgrímur, en Björn lést árið 2014.

Foreldrar Egils voru Guðrún Jónsdóttir, f. 9. apríl 1905, d. 27. mars 1995, og Jón Egilsson, f. 20. febrúar 1906, d. 20. júní 1961. Eldri bróðir hans var Snæbjörn Ingi, sem lést árið 1974.

Egill og Regína giftu sig hinn 3. október 1959. Þau eignuðust tvö börn, Jón Gunnar og Ingunni Ástu. Sambýlismaður Ingunnar er Jóhann Friðrik Kristjánsson

...