Brúðhjón Anant Ambani og Radhika Merchant giftast um helgina.
Brúðhjón Anant Ambani og Radhika Merchant giftast um helgina. — AFP/Sujit Jaiswal

Það er mikið um dýrðir í indversku borginni Mumbai um helgina þegar sonur ríkasta manns Asíu gengur að eiga unnustu sína. Brúðkaupsveislan hófst raunar fyrir þremur mánuðum en talið er að brúðkaupið muni á endanum kosta á bili jafnvirðis 18-21 milljarðs króna.

Mukesh Ambani, sem er 67 ára, stýrir fyrirtækinu Reliance Industries. Tímaritið Forbes telur að eignir hans nemi 123 milljörðum dala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna, og hann er samkvæmt því 11. ríkasti maður heims.

Yngsti sonur Ambanis, Anant, og unnusta hans, Radhika Merchant, sem bæði eru 29 ára, verða gefin saman að hindúasið um helgina í þriggja daga stjörnum prýddri

...