Kosningar Donald Trump leiðir í flestum nýjum könnunum.
Kosningar Donald Trump leiðir í flestum nýjum könnunum. — AFP/Joe Raedle

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti og kosningateymi hans vilja að Joe Biden Bandaríkjaforseti haldi sér í forsetaframboði, samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Guardian. Blaðið segir að fólk í kosningateymi Trumps vilji tryggja að forsetinn verði ekki hrakinn úr kosningabaráttunni.

Á meðan ríkir hálfgert neyðarástand í Demókrataflokknum þar sem a.m.k. 17 þingmenn demókrata hafa krafist þess að Biden víki og leyfi flokknum að útnefna annan frambjóðanda sem sé heppilegri til að takast á við Trump í forsetakosningunum í nóvember. » 22