Fiskidagurinn mikli fer ekki fram á Dalvík þetta sumarið en engu að síður eru Dalvíkingar farnir að undirbúa fiskisúpuveislu í görðum sínum fyrir ættingja og vini helgina 9.-11. ágúst. Fiskidagurinn var jafnan fyrstu helgina eftir verslunarmannahelgi.

„Ég hef heyrt að margir ætli að fá ættingja sína í heimsókn og búa til súpu heima hjá sér,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð. » 6