James Lester Rooks fæddist í Riderwood í Washington-ríki í Bandaríkjunum 24. júní 1946. Hann lést á jóladag 2023.

Foreldrar hans voru Soffía Florence Vatnsdal Rooks og Alfred Lester Rooks. Soffía Florence var íslensk í báðar ættir. Systkini James voru Richard Lyle, f. 1936, Delores Anette, f. 1937, Janis Kay, f. 1939, Dorothy Jean, f. 1942, og Joanne Roxy, f. 1944.

James stundaði nám í fiskifræðum við Washington-háskóla í Seattle og útskrifaðist árið 1972. Eftir það starfaði hann hjá Boeing-fyrirtækinu og fluttist til Marysville í Washington-ríki.

Minningarathöfn um hann fór fram í Marysville 21. júní 2024.

Vorið 1975 fór ég í ferðalag til Bandaríkjanna ásamt móður minni og nokkrum ættingjum. Ég var þá átta ára gömul. Helsti

...