Búkarest Haukur Þrastarson er á leið úr einu stórliði í annað.
Búkarest Haukur Þrastarson er á leið úr einu stórliði í annað. — AFP/Ina Fassbender

Haukur Þrastarson, landsliðsmaður í handknattleik, er á leið frá Kielce í Póllandi til rúmensku meistaranna Dinamo Búkarest, samkvæmt handboltanetmiðlinum Handballbase. Haukur hefur leikið með Kielce í fjögur ár en misst mikið úr eftir að hafa tvívegis slitið krossband í hné. Dinamo er yfirburðalið í Rúmeníu og meðal sterkari liða í Evrópu en það er eitt þeirra sextán liða sem eru með keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu næsta vetur.