Suits eru bandarískir þættir um lögfræðinga. Þáttaröðin er samt miklu flóknari en það en einn af aðaleikurunum fer með hlutverk Mike Ross, sem er vinnandi lögfræðingur án gráðu. Suits var í sjónvarpinu frá árinu 2011 til ársins 2019 og komu út heilar níu þáttaraðir
Suits Mike Ross er ein aðalpersónan.
Suits Mike Ross er ein aðalpersónan.

Jökull Þorkelsson

Jökull Þorkelsson

Suits eru bandarískir þættir um lögfræðinga. Þáttaröðin er samt miklu flóknari en það en einn af aðaleikurunum fer með hlutverk Mike Ross, sem er vinnandi lögfræðingur án gráðu. Suits var í sjónvarpinu frá árinu 2011 til ársins 2019 og komu út heilar níu þáttaraðir.

Suits snýst samt um margt meira en að Mike Ross sé ekki lögfræðingur. Þættirnir kafa mjög djúpt inn í fjölskyldutengsl sem og andlega heilsu. Ég er sjálfur á áttundu þáttaröð og er alveg heltekinn. Hvernig framleiðendur ná að tengja lögfræðivinnu við hversdagsleikann er merkilega vel gert.

Í kringum fjórðu seríu staðna þættirnir aðeins en í fimmtu og sjöttu er magnað að horfa á þá. Þær þáttaraðir veita mun

...