Spánn er Evrópumeistari karla í fótbolta árið 2024 eftir sigur á Englandi, 2:1, í úrslitaleiknum á Ólympíuleikvanginum í Berlín í gærkvöldi. Með sigrinum eru Spánverjar einir á toppnum yfir sigursælustu þjóðirnar á EM, með fjóra sigra, en spænska liðið vann einnig 1964, 2008, 2012 og nú 2024
![Meistarar Spánverjar fagna fjórða Evrópumeistaratitlinum vel og innilega eftir sigurinn á Englendingum á Ólympíuleikvanginum í Berlín.](/myndir/gagnasafn/2024/07/15/00a0d978-8146-4802-85b8-77bbcea81750.jpg)
Meistarar Spánverjar fagna fjórða Evrópumeistaratitlinum vel og innilega eftir sigurinn á Englendingum á Ólympíuleikvanginum í Berlín.
— AFP/Adrian Dennis
EM 2024
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Spánn er Evrópumeistari karla í fótbolta árið 2024 eftir sigur á Englandi, 2:1, í úrslitaleiknum á Ólympíuleikvanginum í Berlín í gærkvöldi.
Með sigrinum eru Spánverjar einir á toppnum yfir sigursælustu þjóðirnar á EM, með fjóra sigra, en spænska liðið vann einnig 1964, 2008, 2012 og nú 2024. Þjóðverjar koma þar á eftir með þrjá, en Vestur-Þýskaland vann tvo Evróputitla fyrir sameiningu Þýskalands.
Varamaðurinn Mikel Oyarzabal, leikmaður Real Sociedad, skoraði sigurmark Spánverja á 87. mínútu er hann afgreiddi boltann í netið af stuttu færi eftir sendingu frá Marc Cucurella.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Nico Williams
...