Nú þegar Evrópumótið í knattspyrnu er búið eru hörðustu boltabullurnar farnar að telja niður dagana þangað til enska úrvalsdeildin í knattspyrnu fer aftur af stað í næsta mánuði. Nú ber svo við að dýrara verður að fylgjast með útsendingum hjá Símanum en síðasta vetur
Bolti Íslendingar fylgjast vel með enska boltanum sem hefst brátt.
Bolti Íslendingar fylgjast vel með enska boltanum sem hefst brátt. — AFP/Darren Staples

<autotextwrap>

Nú þegar Evrópumótið í knattspyrnu er búið eru hörðustu boltabullurnar farnar að telja niður dagana þangað til enska úrvalsdeildin í knattspyrnu fer aftur af stað í næsta mánuði. Nú ber svo við að dýrara verður að fylgjast með útsendingum hjá Símanum en síðasta vetur. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Símans þar sem kynntar eru verð- og skilmálabreytingar.

Ákveðið hefur verið að Síminn Sport muni hækka sem stök áskriftarvara og munu áskrifendur færast yfir í efnisveituna Sjónvarp Símans Premium. Við þá tilfærslu munu þeir þurfa að greiða 8.000 krónur á mánuði í stað 7.000 króna áður. Á móti fá þeir aðgang að því sem efnisveitan hefur upp á að bjóða.

...