Leikkonan Shannen Doherty, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Beverly Hills 90210 er látin. Hún hafði glímt við krabbamein frá árinu 2015. Fulltrúi leikkonunnar, Leslie Sloane, staðfesti andlátið í samtali við tímaritið People
Shannen Doherty
Shannen Doherty

Leikkonan Shannen Doherty, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttaröðinni Beverly Hills 90210 er látin. Hún hafði glímt við krabbamein frá árinu 2015. Fulltrúi leikkonunnar, Leslie Sloane, staðfesti andlátið í samtali við tímaritið People. Doherty var opinská um glímu sína við sjúkdóminn og hélt m.a. úti hlaðvarpi þar sem hún talaði um reynslu sína en síðasti þátturinn kom út í síðasta mánuði.

Doherty var, eins og áður sagði, fræg fyrir túlkun sína á Brendu Walsh í Beverly Hills 90210 á tíunda áratugnum og lék í fjórum þáttaröðum. Síðar lék hún í þáttaröðinni Charmed en þar var hún í hlutverki elstu systurinnar af þremur sem allar eru göldróttar. Þá má einnig nefna hlutverk í Heathers, Mallrats og Jay and Silent Bob Strike Back.